Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Súludans ójá.... :)

11. september 2006 klukkan 20:04
jæja ákvað að henda hérna inn smá bloggi til tilbreytingar, þið verðið að afsaka mig þó að ég hafi í rauninni ENGA afsökun hehe :) en já ég hef það bara fínt í borginni en það er nú ekki margt búið að gerast sem er frásögu færandi....??? ekkert krassandi allavega.

Við ætluðum að panta okkur ferð til danmerkur um daginn og ég var komið með kortið í hendurnar og var að fara að panta þegar ég fékk sms frá henni kötu minni um það að það væri búið að loka tívolíinu þessa helgi sem við ætluðum að fara Gráta  svo að þá fannst mér þetta ekki alveg eins spennandi því að ég hef aldrei farið þegar tívolíið er opið, sorry Kata mín mig langaði MIKIÐ að koma og heimsækja þig elskan.... miss ya   

Heyrðu svo fórum við út að borða á Argentínu um daginn og það var sko ævintýri útaf fyrir sig  Ullandi Fengum alveg 6 rétti, og þar á meðal smakkaði ég kengúru og það var bara gott skal ég segja ykkur :) svo var nottla alveg hellings vín með matnum, rautt, hvítt og rósavín og mojhito og fleira svo að þetta var rosa fjör :) fórum 4 saman...

Svo var ég að gæsa hana Kristínu vinkonu á laugardaginn, það var svaka fjör en hafði samt verið skemmtilegra ef að við hefðum getað hellt hana blindfulla, en þar sem að hún er ólétt aftur, komin einhverja 4-5 mánuði þá kom ekkert svona til greina....
en við reyndum samt að fara illa með hana hehe....byrjuðum að fara í kennslu í magadans og Súlúdans (poledance) og það var bara fjör :) efnileg á súlunni mar.... vorum búnar að klæða hana upp í löggubúning úr adam og evu og létum hana svo vera í honum það sem eftir var dagsins, fórum með hana í kringluna og létum mála hana eitthvað gærulega en vandamálið var að hún var bara ekki nógu gæruleg þetta fór henni bara svona rosalega vel, búningurinn og það hehe :)  ætluðum svo að láta hana sníkja pening af fólki og safna sér uppí 1000 kall annars fengi hún ekkert að éta, en hún þorði því ekki greiið þannig að hún stóð sig ekki alveg nógu vel stelpan :) svo fórum við með hana í nudd og við hengum í pottinum á meðan í mecca spa og svo var tekið sig til og farið á Carúsó þar sem að við fengum þennan líka GEÐVEIKA mat, nautasteik og alles :)
alveg magnaður dagur og svo er bara brúðkaupið næsta laugardag .....
 
Þarna er gellan að meika það í magadans :)

Já mér sýnist við bara allar hafað meikað það hehe :)

Kellan í löggubúningnum tilbúin á súluna...

Þarna var hún að handtaka eitthvað annað gæsagrey :)

Snilldarhelgi, ég skráði mig að meira að segja í súludans, já það er hægt að æfa þetta hehe en þetta er pínu dýrt þannig að ég á eftir að endurskoða þetta :) en þetta er ekkert smá gaman og mikil brennsla.....

ég fékk sms frá 3 manneskjum hvort að ég ætlaði ekki að koma og djamma á sálinni á laugardagskvöldið og vá hvað mig langaði.... ef að ég hefði ekki verið að gæsa þá hefði ég stokkið norður til ykkar elskurnar mínar.... :)

HAFið það gott :)
Elva Bryndís
10 athugasemdir

ó borg mín borg....

21. ágúst 2006 klukkan 21:47
jájájájá þá er maður komin í borgina aftur :) endalaus hamingja bara, búin að koma okkur bara vel fyrir í íbúðinni sem er bara svona skínandi Svalur svo var bara vaknað snemma í morgun og kíkt á World Class á Laugum, svona líka ægilega flott bara og svo var skellt sér í skólann að ná í stundaskrána sem er bara ágæt, jájá, ég get verið í fríi á föstudögum sem er nottla BARA hamingja Hlæjandi ohhh mér finnst alveg yndislegt að vera komin hingað.... en ég þarf víst að skreppa norður aðeins næstu helgi og vinna en ætla að reyna að stoppa bara eins stutt og ég get....
núna ligg ég bara uppí sófa í leti en er að spá í að drífa mig aftur í Laugar á eftir og kíkja kanski í einhvern skemmtilegan tíma eða eitthvað en skólinn byrjar svo ekki fyrr en á miðvikudaginn....

HEYRUMST :)
Elva Bryndís
6 athugasemdir

úúúúffff... erfið vika...

09. ágúst 2006 klukkan 17:52
já ég veit ekki hvaðmaður er að kvarta, þetta er bara 4 daga vinnu vika og það eru núna nákvæmlega 7 og hálfur dagur eftir í vinunni!!! Skömmustulegur eeeenn samt er maður að drepast úr leiðindum því að maður VEIT að maður er að hætta og þá bara nennir maður ekki neinu!!!  Við ELín erum alveg að mygla hérna, getum ekki beðið eftir því að henda dótinu okkar í bílinn og bruna suður Ullandi vá hvað ég hlakka til að fara bara í skólann aftur, gvuð ég bara get ekki beðið, og þá eignast maður kanski eitthvað líf, það er búið að vera svo mikið að gera að mér finnst ég bara vera búin að missa af sumrinu, maður er ekki búin að gera neitt, engin útilega, engin útihátíð, engin sumarbústaðaferð og ég hef ekki ekki einu sinni farið í lónið í mývatnssveit í sumar eins og ég var búin að plana.... ! og ekki sé ég fram á að ég sé að fara neitt næstu helgi þannig að þá er sumarið bara búið fyrir mér! helgina þar á eftir er ég farin suður, hlakka til að segja bless í bili við þennan blessaða bæ sem ég bý í en þetta verður ekkert löng sæla þar sem að ég kem aftur í desember og fer að vinna eins og motherfucker aftur....Öskrandi  jæja ætla að halda áfram að liggja í volæði og vorkenna sjálfri mér og éta skúffuköku hehe....

heyrumst.....
Elva Bryndís
5 athugasemdir

Verzló hvað???

08. ágúst 2006 klukkan 00:27

já mér fannst þessi versló sökka feitt!!!! já mér er alvara! mér fannst alltof mikið af fólki í bænum og ALLTOF mikið af fullum og útúrdópuðum unglingum!!! ullabjakk maður komst ekki fyrir í sínum eigin bæ! og ég er ekkert bitur ef þið haldið það, þetta var bara leiðinlegt! Óákveðinn 

á föstudagskvöldinu var bara kíkt í bæjinn, rölt um og fylgst með dagskránni og svona bara næs og farið heim um 12 hehe

á laugardagskvöldinu átti sko að taka feitt þá því, fórum heim til Jönu og Stebba og vorum að djúsa og svo var kíkt á langþráð sálarball í sjallanum..... Hissa neinei þegar út er komið er bara mígandi rigning ojjjjj, en alltílagi þar sem við vorum með bílstjóra, en þegar niðrí bæ er komið sér maður þessa líka ógeðslegu röð fyrir utan sjallan og áður en við vissum af vorum við lentar í þessum líka svaða troðning og loksins þegar maður komst inn var manni bara orðið óglatt af kremju!!! jæja ákváðum að láta það ekki stoppa okkur og skelltum okkur á dansgólfið, þar sem btw var bara ungt og ofurölvi fólk! Alltíeinu fékk ég bjórgusu yfir öxlina á mér ofan af svölunum fyrir ofan!!! URrrrr.... mín var ekki sátt, og þegar næsta gusa kom og lenti rétt við hliðina á okkur þá var okkur nóg boðið og við fórum! Eftir um klukkutíma í Sjallanum! MET! það var röð á bæði kaffi Ak og Kaffi Amour þannig að við fórum bara heim! var komin í beddann kl 3!!! þvílíkt djamm.... Öskrandi


Sunnudagur: skelltum okkur á Brekkusönginn á íþróttavelllinum og svo smástund á kaffihús og síðan var farið bara heim um eitt leitið.... Skömmustulegur

já hún var ekki upp á marga fiska þessi blessaða verslunarmannahelgi, er maðúr orðinn svona gamall eða hvað er málið???? ......

Elva Bryndís
7 athugasemdir

allt að gerast...

28. júlí 2006 klukkan 01:39
jájájá verður maður ekki að reyna að standa við sitt og blogga smá hérna?? Tala af sér ég var að koma úr afmælisveislu... ekkert smá gaman, afmælisbarnið sem er btw eins árs fór alveg á kostum og fangaði athygli allra á staðnum allan tímann, gvuð hvað lífið var einfalt þega maður var eins árs hehe, en ég vil óska henni Sunnu minni innilega til hamingju með daginn og Atla og Helgu nottla líka :) endaus gleði.... það voru grillaðar pylsur og svo kökur og snúðar og fleira gotterí!
 Upphaflega átti samt "VEISLAN" að vera í Kjarna, en svo var ákveðið á síðustu stundu að hætta við og halda hana í dvergagilinu eeeeeen hún ég var nottla með batteríslausan síma í allan dag þannig að ég fékk ekki skilaboðin um þessa breytingu á stöðunni svo að ég mætti bara galvösk í Kjarna með pakka undir hendinni!!! Óákveðinn Þar var risahópur af STRAKUM að grilla og ég rölti þarna útum allt eins og einhver túristi sem hafði aldrei sé fólk grilla áður og fattaði á endanum að ég þekkti bara ekki neinn þarna... Öskrandi svo að ég mátti gjöra svo vel að bruna heim, stinga fjandans símanum í hleðslu og bíða eftir smsinu til að fá að vita að veislan var bara í næstu götu!!! ALLTAF jafn heppin Skömmustulegur

FRöken er farin í bili.....
Elva Bryndís
3 athugasemdir

comeback....

26. júlí 2006 klukkan 15:10
Mig langar að byrja á því að bjóða sjálfa mig velkomna í bloggheiminn aftur eftir töluverðan tíma.... Koss ákvað að hafa þetta bara comeback með style og fá mér nýja síðu og leist svona ágætlega á þetta bloggar.is mæli með þessu bara :) það er eins gott að fólk sýni smá lit hérna og vil ég minna á comment og gestabók hérna.... Skömmustulegur Síðan er enn í vinnslu svo að fólk má nú ekki móðgast ef að það er ekki inná tenglinum hérna, þetta kemur allt með kalda vatninu folks en ég hef ekki alveg beint haft tímann til að vera að hanga eitthvað í tölvunni undanfarið, en þar sem að maður er nú að fara í skóla eftir mánuð og ekki komin með neina vinnu þá kanski fer maður að eignast eitthvað líf Hlæjandi jæja gott í bili, reyni að koma með eitthvað krassandi bráðlega...

FRöken..
Elva Bryndís
5 athugasemdir